Habba Kriss
365Habba Kriss
Ég hlusta frekar mikið á útvarp, ég er ein af þessum týpum sem finnst mjög óþægilegt að hafa þögn í kringum mig. Ég vil ekki einu sinni hafa þögn á næturnar. Ég sef alltaf annað hvort með kveikt á sjónvarpinu eða á útvarpi.
Vandamálið á íslandi að framboðið af góðum útvarpsstöðvum eru af skornum skammti. Bylgjan og FM er viðbjóður, ég bara get ekki hlustað á þær stöðvar. X-ið spilar rokk, sem er gott en það er eins og það sé keppni þar á bæ að spila alltaf eitthvað rosalega nýtt. Útvarpsmennirnir eru heldur ekkert spes fynnst mér. KissFm er alls ekki góð finnst mér og ekki létt heldur. Þannig að þá er ekki mikið eftir, Lindin, Útvarp Saga og XFM. Ekki nenni ég að hlusta á kristilega stöð og ekki nenni ég að hlusta á útvarp sögu út í eitt (þótt ég hlusta nú stundum á hana, hef gaman að skrýtnu fólki). Þá er bara ein stöð eftir, XFM. Capone bræður eru ansi fínir oft, Snorri er óháð öllu ansi góður útvarpsmaður, VBV og Böddi eru algjörlega ómissandi með íþróttaþáttinn sinn. Annað er nú ekki eins gott á þessari stöð, held ég..... hef ekki heyrt allt. XFM var eftir því sem ég best veit ansi vinsæl stöð, var að öllu jöfnu með mikið meiri hlustun en X-ið sem var að höfða til sama hóps. X-ið er í eigu 365 (sem er í eigu Baugs). Það virðist vera sem að þessir menn sem standa að baki 365 vilji eignast Ísland. AMK geta þeir ekki höndlað samkeppni. 365 keypti uppáhalds útvarpsstöðina mína til þess eins að leggja hana niður! Nú hefur X-ið enga samkeppni. Hvaða rugl er þetta, hvað er það að kaupa upp samkeppnisaðilana til þess að leggja þá niður. 365 á semsagt allar útvarpstöðvar íslands nánast nema RUV stöðvarnar og útvarp sögu. Nú veður styllt á rás 2 hjá mér.
Þakka guði fyrir að 365 á ekki fótbolta eða handboltalið, þeir myndu bara kaupa hin liðin líka og leggja þau niður - Auðsóttir íslandsmeistaratitlar
Annað fróðlegt, Og Vodafone er í eigu baugs. 365 er í eigu baus. Og Vodafone keypti ekki fyrir svo löngu höfundarrétt af lögum nokkurra íslenskra tónlistamanna. Sagðist vera að styðja við listamenn á landinu... kom gífulega á óvart þegar lög þessara listamanna fóru að heyrast ótt og títt á úrvarpsstöðvum 365! og hver fær stefgjöldin??? Þeir mega þó eiga eitt, þeir kunna að græða pening.
Er samt að hugsa um að færa mig yfir á mogga bloggið. Eitthvað svo flott við það kerfi, hvernig það tengist féttum morgunblaðsins. Um að gera líka þegar maður er í svona fýlu út í 365 að styðja samkeppnisaðilan.
Kannski verður hann bara keyptur ef hann verður of vinsæll :/
tími á blogg.... bara um eitthvaðHabba Kriss
Sennilega komin tími á nýja færslu. Andinn er bara einhvern vegin ekki yfir mér.Varla fer maður að tala um einkalíf annara er það, þ.e. Magna og fyrrverandi frú. Mér fannst þó þessi fréttatilkynning þeirra frekar spes. Kannski vilja þau vera Brad og Jen. Fór að velta fyrir mér hvort að svona tilkynningar myndu byrtast í bæjarblöðum í 300.000 manna bæjarfélögum í USA eða UK.
Jim og Jude eru skilin. Jim tók þátt í raunveruleikaþættinum Disco dancer. Þau hafa fjarlægst hvort annað tilfinningalega eftir þátttöku Jim´s í þættinum. Jim og Jude biðja bæjarbúa að ef gefa sér svigrúm til að vinna úr þessum erfiðu tilfinningum.
Jólin voru fín að mestu leit, ekki öllu. Áramótin voru róleg, mjög róleg. Ég var í partý 29 des og brúðkaup 30 des. Gat bara ekki meir.
Unnum stjörnunna í gær, ohhhhh það var alveg agalega sætt. Við spiluðum vörnina vel, get ekki sagt að sóknarleikur okkar hafi verið sterkur. En dugði og rúmlega það. Miðað við að hvorki ég, Silla né Arna skoruðum úr fráköstum þá er ég nú bara alveg gáttuð að leikurinn fór ekki 16 - 15 fyrir þeim!
En eins og Justa sagði í viðtalinu eftir leikinn, þær tapa nú varla mikið að stigum í viðbót miðað við þann mannskap sem þær hafa. Enda hafa þær unnið allt sitt afskaplega örugglega.
Kem inn næst þegar andin kemur yfir mig
ByrgiðHabba Kriss
Er maður ekki frekar hallærislegur ef maður bloggar ekki um þetta Byrgismál?Hef verið að velta þessu máli fyrir mér og komist að þeirri niðurstöðu að ef allt þetta er satt (sem ég held að það sé, kem að ástæðum þess á eftir) þá hefur maðurinn ekki brotið nokkur einustu lög. Guðmundur veitir sjálfseignastofnun forstöðu, sjálfseignarstofnun sem ríkið styrkir vel og duglega. Ef Guðmundur væri sálfræðingur eða læknir hefði hann brotið lög. Guðmundur er bara maður sem rekur stofnun, stofnun sem er ansi erfitt að skilgreina hvað er. Hann segir að þetta sé meðferðarheimili en óljóst er hverskonar meðferð fer þarna fram. Amk er hún ekki akademísk. Það segir kannski sitt að þetta meðferðaheimili er undir félagsmálaráðuneytinu en ekki heilbrigðisráðuneytinu eins og til að mynda SÁÁ og Teigur eru. Sennilega er þetta nær því að vera trúarsöfnuður eða gistiheimili.
En aftur að lögbrotunum, afhverju braut hann ekki lög? Jú það er ekki bannað að maður sem rekur svona heimli stundi kynlíf með konum sem samþykkja kynlífið. Læknir myndi sennilega missa leyfið og sálfræðingur líka. En Guðmundur, hann hefur ekkert leyfi, það ná engin sérlög yfir hans eins og aðra sem stunda meðferð.
Hitt er svo annað mál að þetta er algjörlega siðlaust. Kannski átta sig ekki allir á hverskonar einstaklingar þetta eru sem eru skjólstæðingarr hans. Þetta er konur sem eru með mölbrotna sjálfsmynd. Þetta er konur sem hafa e.t.v. haft kynlíf sem skiptimynt á götunni. Þetta eru konur sem finnast afskaplega lítið til sín koma. Þetta eru konur sem vita ekki hvar eðlileg mörk eru. Svo lenda þær þarna, "guðinn" á staðnum fær afskaplega mikin áhuga á þeim og tekur margra klukkutíma viðtöl við þær, eitthvað sem sálfræðingur myndi t.d. aldrei nenna að gera (enda hefur það lítin tilgang). Ekki er ólíklegt að komi upp sú hugsun, hann er að gera svo mikið fyrir mig, ég þarf að gera eitthvað fyrir hann í staðin.
Ég er kannski að ganga aðeins yfir strikið, ég læt svo líta út fyrir í skrifum mínum að þetta sé allt satt. Ég trúi því að þetta sé satt. Ég hef margar ástæður til þess. Ein sú er þessi. Hverjir eru það sem gera svona hluti? Jú það eru siðblindir einstaklingar, góðmenni eru ekki líklegir kandidatar í svona verknaði. Venjulegt fólk ekki heldur. Hvernig eru siðblindingjar. Jú meðal annars eru þeir kaldir sem ís. Setjið þið nú ykkur í hans spor. Þið eruð sökuð um mjög alvarlega hluti, hluti sem taka æruna frá ykkur, hluti sem gætu rústað vinnunni ykkar, hugðarefni ykkar og fjölskyldu ykkar. Það er ekki bara einhv vitleysingur sem er að ásaka ykkur, heldur er það sjónvarpsfréttamaður með myndavél og "mæk" Hann segist hafa fullt af gögnum í höndunum. Hvernig mynduð þið bregðast við, jafnvel þótt að þetta væri ósatt??
Lang lang felstir myndu fara í fár, þyrftu að jafna sig aðeins til að geta hugsað skýrt. Ég veit að ég myndi senilega fara bara að grenja, og ekki er ég nú mjög taugatrekt týpa. Hvernig myndu siðblindir einstaklingar bregðast við..... jú nákvæmlega eins Guðmundur brást við. Væri hægt að nota þetta sem kennslumyndband í klínískri sálfræði.
Að öðru, mikið er lífið rosalega skrýið stundum
GæðastundHabba Kriss
Min gæðastund hverri viku er að liggja upp í rúmi með sængina upp að hálsi og horfa á Silfur Egils.Egill byrjaði vel í dag með sínum leiðara um jöfnuð. Var bara 99% sammála honum í þeim pistli. Egil var m.a. að fjalla um að í sumu væri bara ekki jöfnuður og það væri asnalegt að troða jöfnuði fyrir suma hluti. Sem dæmi nefndi Egill að fólki þætti skemmtilegra að horfa á karla spila fótbolta en flestum þætti skemmtilegra að horfa á konur í fimleikum og spila handbolta. Fyrir minn heim eru þetta stórfréttir. Við stelpunar erum skemmtilegri á handboltavellinum en karlar. Ég kýs að líta á þetta sem staðreynd frekar en skoðun.
Bróðir minn var gestur hjá Agli. Hann kom mér ánægjulega á óvart þar. Hann er að mæla fyrir því að aðgengi RUV að auglýsingamarkaði verði takmarkað. Ég myndi nú helst vilja selja RUV en þetta er klárlega í áttina.
Undir lok þáttarins mættu svo ungar konur sem allar áttu þær það sameiginlegt að vera að bjóða sig fram í prófkjör vinstri grænna. Einhvernveginn kom það mér ekki á óvart að tveir frambjóðendurnir af fjórum voru í lopapeysu.
Ekki fannst mér þetta gæfulegir frambjóðendur. Egill spurði þær afhverju þær hefðu valið VG. Svörin voru merkileg. VG varð fyrir valinu því að það væri flokkur sem væri með friði, væri með því að aldraðir hefðu það gott og væri með jafnrétti kynjana. Maður spyr sig eru hinir flokkarnir þá á móti friði, velferð aldraðra og jafnrétti kynjana?? Þegar stórt er spurt. Allar skvísunar voru sammála um þetta. Ein vildi þó skera sig út og bætti við að hún hefði getað boðið sig fram hjá Framsóknarflokknum en gerði það ekki þar sem hún væri ekki sammála hugmyndfræði þess flokks. Þurfti virkilega að taka þetta fram? Maður hefði nú haldið að nýjir frambjóðendur myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að nota þetta frábæra kynningartækifræði til að kynna sig og sín mál. Því var ekki fyrir að fara enda má helst engin skara framúr hjá VG s.b.r nýjasta útspil Ömma fátæka.
Ég verð að benda þeim örfáu sem lesa þetta blogg á hreint frábæra vefsíðu. www.vantru.is Ég er meira að segja að pæla að ganga í þennan félagsskap. Ekki vegna afstöðu minnar til guðs (sem ég er nú eiginlega ekki alveg viss hver er og nenni ekki að pæla mikið í) heldur vegna þess hversu málefnalega þessir menn fjalla um ýmis hindurvitni. Þeir eru í stríði gegn ruglinu. Kjaftæðisvaktinn þeirra er oft á tíðum frábær lesning. Þeir færa rök fyrir máli sínu og vísa í heimildir sem er nú eitthvað sem ansi margir mættu taka sér til fyrirmyndar. Svo gera þeir grein fyrir nokkrum ansi skæðum rökvillum.
Hér eru nokkrar góðar greinar frá vantrúarmönnum
Ráð gegn kvefi
Bowen tækni
Hómópatía
Sálfræðistjörnuspeki
Gagnsemisrökvillan
Steinar Sigríðar Klingenbergs
Laufdal yngriHabba Kriss
Minntist hér í drull færslunni hér að neðan á Sigurð Laufdal son Gulla á gítarinum. Hér er lag Sigurðar í frelsarans nafnihttp://www.rokk.is/mp3/s/siggi_lauf_i_frelsarans_nafni.mp3
GullkindinHabba Kriss
Ég lagði leið mína á gullkindina áðan. Hef mætt á þessa frábæru hátið frá upphafi. Tvíhöfðamenn voru upphafsmenn hátíðarinnar en gullkindina fá þeir sem gera verst á hverju ári. Flestir hafa húmor fyrir því að vera tilnefndir og er því þetta hin besta skemmtun.
Hátíðin í ár fór vel af stað. Unnur Birna (sú sem ætlaði að draga sig úr sviðsljósinu) og Stjáni Stuð voru kynnar. Unnur var sæt að vanda en Stjáni fór hreinlega hamförum. Maðurinn er snillingur.
Það ætti þó ekki að vera erfitt að veita verðlaunin næsta ár. Þrír einstaklingar hreinlega skitu upp á bak þarna. Fyrstan ber að nefna Helga Seljan. Hann var kynnir á hátíðinni. Veitti verðlaun fyrir versta sjónvarpsmann ársins að mig minnir. Drengurinn mætti á fimmtudagskvöldi rétt um 21.00 blindfullur upp á svið, gat ekki sleppt sígarettunni sinni og þvaðraði eitthvað í mækinn. Hann gat þó nokkuð skammalaust afhent verðlaunin en kom sér, því miður fyrir hann, ekki skammlaust niður af sviðinu. Drengurinn datt. Helgi Seljan þarf að skeina sér. Lítið rokk við þetta. Annar drengur sem þarf að skeina sér, sennilega í heilan mánuð er Andri Capone. Andri er líka þekktur sem Freysi á Xinu eða eitthvað þannig. Andri sá um þessa hátið og hefur reyndar gert með príði áður. Í þetta skiptið gat hann ekki sleppt því að vera blindfullur í vinnunni. Eitthvað sorglegt við það. Drengurinn fór upp á svið til að veita Árna Johnsen heiðursverðlaun ársins og þar fékk hann niðurgang. Reyndar fannst mér mjög fyndið að Árni skildi fá þessi verðlaun. Hann á það svo sannarlega skilið líkt og Eiríkur Jónsson síðasta ár. Árni mætti ekki til að veita verðlaununum viðtöku, láji honum hver sem vill. Ansi margt má segja um Árna en það sem Andri lét út úr sér blindfullur, nota bene sem ábyraðarmaður þessar hátíðar var honum og því fyrirtæki til vansa. Hvaða fyrirtæki annars lætur það óátalið að starfsmenn sínir séu blindfullir í vinnunni?? Amk virtist framkvæmdastjóri útvarpssviðs íslenska útvarpsfélagsins, heimspekingurinn Kiddi Bigfoot ekki vera neitt ósáttur við starfsmann ársins. Kiddi er einmitt þriðji aðilinn sem missti hægðir þetta kvöldið. Ekki nóg með það að honum þótti starfsmaður sinn standa sig með príði heldur var hann sá maður sem sló öllum við í frammíköllum. Afskaplega hallærislegum og óviðeigandi frammíköllum sem voru ekkert spes fyrir það tónlistarfólk sem var að reyna að troða þarna upp. Ekki svo sem að maður hafi búist við miklu af stórfæti.
Ekki er svo að skilja að þessi hátið hafi verið alveg ömurleg. Eitt virkilega áhugavert tónlistaratriði var á hátíðinni. Sonur eins af mínum uppáhalds trúbadornum, Guðlaugs Laufdals, a.k.a. Gulli á gítarnum aka2 Gulli á omega tók tvö lög. Sonurinn Sigurður Laufdal tók sína útgáfu af trúarsöngvum. Efast um að faðir hans sé stoltur af syninum. Held að það sé þó ekki vafi á að Laufdal yngri standi þeim eldri fetum framar í tónlistinni. Sá eldri er þó sennilega líklegri kandidat í himnaríki.
Kannski er ég eitthvað óvenju pirruð í dag, þessi tími mánaðarins??
Saddam og Ögmundur fátækiHabba Kriss
Jæja það er víst búið að dæma Saddam til dauða. Ég svo sem græt ekki dauða hans, ég verð ekki einu sinni miður mín þegar hann fellur frá. Ég er almennt á
móti dauðarefsingum og til að halda prinsipið þá er ég á móti því að Sadam skuli vera dæmdur til dauða. Í raun finnst mér það eiginlega of ódýr laus fyrir hann. Ágætt að drepast bara, verra að sitja í einhv ógeðis fangaklefa það sem eftir er.Ég skil svo sem að margir fagni þessum dómi. Enga síður brá mér þegar Bush var að tilkynna niðurstöðuna. Það mætti halda að Bush hefði verið á tónleikum þar sem Bítlanir voru að koma aftur saman slík voru fagnaðarlætinn. Mér finnst bara eitthvað skrítið við það að fagna dauða einhvers. Hversu vondur sem hann er.
Sé í anda viðbrögð okkar vesturlandabúa ef fréttamyndir hefðu borist af því þar sem múslimar væri að fagna eins og óðir menn vegna þess að Blair væri á leið í snöruna.
Það verður þó seint sagt um Saddam að hann kunni ekki að velja sér nærur karlinn
Að öðru, að Ömma fátæka. Rak augun í frétt um daginn..... hérna er texti fréttarinnar.

Ögmundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, segir það til vinnandi að senda viðskiptabankana úr landi til að geta aukið jöfnuð í samfélaginu.
Ögmundur segir misskiptingu og ranglæti þrífast og breiða úr sér sem aldrei fyrr. Bankarnir greiði aðeins 12 milljarða fjármagnstekjuskatt af 120 milljarða hagnaði og hóti að hverfa úr landi verði skatturinn hækkaður.
Spurning sé hvort jafnaðarsamfélaginu sé fórnandi fyrir 12 milljarða og nokkra stráka og stelpur í silkifötum. „Er þotuliðinu fórnandi fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti? Mitt svar er já," skrifar Ögmundur.
Er maðurinn bilaður? Auðvitað megum við alveg missa af 12 miljörðum í skatta. Megum líka alveg við því að missa úr landa 2000 bankastarfsmenn. Þar reyndar missum við af tekjuskattinum þeirra sem er nú dágóður slatti af peningum myndi ég halda. Gætum líka bara vísað úr landi öllum þeim sem eru fátækir, þá væri komin meiri jöfnuður í þjóðfélagið.
Ætli slagorð VG verði á þessa leið í næstu kostningum "Ísland fyrir alla nema bankastarfsmenn" Það væri kannski ágætis mótsögn við það sem virðist ætla að enda sem slagorð frjálslyndra "Ísland fyrir íslendinga"
PirringurHabba Kriss
Tilfinning dagsins er pirringur! Afhverju? Veit ekki.
Að prófkjöri loknuHabba Kriss
Sigga gekk ekki eins og ég hafði vonað í prófkjörinu. Ástæður þess eru nokkrar. Merkilegt nokk þá er Össur Skarp heiðursfreyja ansi nærri sannleikanum held ég í pistli sínum.Þótt að Össur sé ekki mín megin í politík þá hef ég gaman að honum. Hann er skemmtilegur og virkar sanngjarn náungi. Skrif hans eru oft ansi góð sem og tilsvör. Hann er augljóslega í politík af einskærum áhuga.
Annar politíkus sem ég hef gaman að er Sigurjón Þórðarson. Munurinn er reyndar sá að ég hlæ með Össurri en að Sigurjóni. Sigurjón tjáir sig um allt. Skiptir ekki máli um hvað er verið að fjalla á Alþingi, Sigurjón er mættur í pontu, yfirleitt mjög áhyggjufullur á svip. Það er allt að fara til fjandans telur hann! Ég áttaði mig ekki alveg á honum fyrst, fannst hann tala heimskulega um ýmis mál. Gat þó ekki alveg dæmt það þar sem ég hefði ekki mikið vit á öllum þeim fjölmörgu málum sem hann tjáði sig um. Þegar hann byrjaði svo að tjá sig um geðheilbrigðismál hófst hláturinn. Hann vissi ekkert um hvað hann var að tala, hann bara talaði. Hann bara talar alltaf. Það er nefnilega betra held ég fyrir alþingismenn að tjá sig frekar um fá mál en að viti.
Aftur að pistli Össurar, hér koma highlights
"Don Gullfreð (innskot mitt: Gulli) minnti helst á fræga persónu í trílógíu Francis Ford Coppola um ættina frá Corleone á Sikiley, þegar lagt var til atlögunnar að Birni, og skutilsveinunum Sigurði Kára og Birgi Ármannssyni refsað um leið."
"Það er ekki nóg með að nýja flokkseigendafélagið hafið hlaðið Birni Bjarnasyni. G-klíkan nýja, þar sem Guðlaugur Þór ber öxi Geirs, lagðist af fullum þunga gegn þeim þingmönnum tveimur, Sigurði Kára Kristjánssyni og Birgi Ármannssyni, sem Davíð sagði í viðtali við Viðskiptablaðið að hefðu einir gengið með sér undir höggið í fjölmiðlamálinu. "
"Hin öfluga maskína G-klíkunnar vann gegn bæði Sigurði Kára og Birgi meðfram stórskotaliðsárásinni á Björn. Geir gerði það auðvitað ekki persónulega umfram það að láta atlöguna afskiptalausa. Það er áhrifarík stjórnunaraðferð ef svo ber undir. Guðlaugur Þór notaði skjólið sem í því fólst til að stýfa vængi efnismanna, sem hugsanlega hefðu í krafti verðleika og frammistöðu á Alþingi - þar sem þeir mæta báðir í vinnuna sína - getað veitt honum keppni um frama og sæti í ríkisstjórnum. En þeir voru í röngu liði. Þeir voru Davíðsmenn líkt einsog Gísli Marteinn sem Guðlaugur sló líka af gegnum baktjaldamakk í átökunum um Borgina. Gömul tengsl við Davíð virðist versta eitrið í beinum skæruliðanna sem stjórna nú Valhöll - í skjóli afskiptalauss formanns. "
"Guðlaugur Þór hefur hins vegar - einsog Gunnar Thoroddsen á sínum tíma - nú náð þeim áfanga að eignast ævilanga andstæðinga í jafnt Engeyjarættinni sem þeim ungu þingmönnum sem hann tók þátt í að lúskra í nýliðnu prófkjöri. Sigurður Kári og Birgir Ármannsson, eiga einsog Bjarni Benediktsson, eftir að vera lengi á dögum í stjórnmálum."
Svona er nú það. Held að í fyrsta sinn frá því að ég byrjaði að kjósa muni ég setja X við D með eilítið óbragði í munni.
