Ađalvalmynd

Leit

Gagnasafn

Leikur dagsins

GullkindinHabba Kriss

Ég lagði leið mína á gullkindina áðan.  Hef mætt á þessa frábæru hátið frá upphafi.  Tvíhöfðamenn voru upphafsmenn hátíðarinnar en gullkindina fá þeir sem gera verst á hverju ári.  Flestir hafa húmor fyrir því að vera tilnefndir og er því þetta hin besta skemmtun. 
Hátíðin í ár fór vel af stað.  Unnur Birna (sú sem ætlaði að draga sig úr sviðsljósinu) og Stjáni Stuð voru kynnar.  Unnur var sæt að vanda en Stjáni fór hreinlega hamförum.  Maðurinn er snillingur.

Það ætti þó ekki að vera erfitt að veita verðlaunin næsta ár.  Þrír einstaklingar hreinlega skitu upp á bak þarna.  Fyrstan ber að nefna Helga Seljan.  Hann var kynnir á hátíðinni.  Veitti verðlaun fyrir versta sjónvarpsmann ársins að mig minnir.  Drengurinn mætti á fimmtudagskvöldi rétt um 21.00 blindfullur upp á svið, gat ekki sleppt sígarettunni sinni og þvaðraði eitthvað í mækinn.  Hann gat þó nokkuð skammalaust afhent verðlaunin en kom sér, því miður fyrir hann, ekki skammlaust niður af sviðinu.  Drengurinn datt.  Helgi Seljan þarf að skeina sér.  Lítið rokk við þetta.  Annar drengur sem þarf að skeina sér, sennilega í heilan mánuð er Andri Capone.  Andri er líka þekktur sem Freysi á Xinu eða eitthvað þannig.  Andri sá um þessa hátið og hefur reyndar gert með príði áður.  Í þetta skiptið gat hann ekki sleppt því að vera blindfullur í vinnunni.  Eitthvað sorglegt við það.  Drengurinn fór upp á svið til að veita Árna Johnsen heiðursverðlaun ársins og þar fékk hann niðurgang.  Reyndar fannst mér mjög fyndið að Árni skildi fá þessi verðlaun.  Hann á það svo sannarlega skilið líkt og Eiríkur Jónsson síðasta ár.  Árni mætti ekki til að veita verðlaununum viðtöku, láji honum hver sem vill.  Ansi margt má segja um Árna en það sem Andri lét út úr sér blindfullur, nota bene sem ábyraðarmaður þessar hátíðar var honum og því fyrirtæki til vansa.  Hvaða fyrirtæki annars lætur það óátalið að starfsmenn sínir séu blindfullir í vinnunni??  Amk virtist framkvæmdastjóri útvarpssviðs íslenska útvarpsfélagsins, heimspekingurinn Kiddi Bigfoot ekki vera neitt ósáttur við starfsmann ársins.  Kiddi er einmitt þriðji aðilinn sem missti hægðir þetta kvöldið.  Ekki nóg með það að honum þótti  starfsmaður sinn standa sig með príði heldur var hann sá maður sem sló öllum við í frammíköllum.  Afskaplega hallærislegum og óviðeigandi frammíköllum sem voru ekkert spes fyrir það tónlistarfólk sem var að reyna að troða þarna upp.  Ekki svo sem að maður hafi búist við miklu af stórfæti.

Ekki er svo að skilja að þessi hátið hafi verið alveg ömurleg.  Eitt virkilega áhugavert tónlistaratriði var á hátíðinni.  Sonur eins af mínum uppáhalds trúbadornum, Guðlaugs Laufdals, a.k.a. Gulli á gítarnum aka2 Gulli á omega tók tvö lög.  Sonurinn Sigurður Laufdal tók sína útgáfu af trúarsöngvum.  Efast um að faðir hans sé stoltur af syninum.  Held að það sé þó ekki vafi á að Laufdal yngri standi þeim eldri fetum framar í tónlistinni.  Sá eldri er þó sennilega líklegri kandidat í himnaríki.

Kannski er ég eitthvað óvenju pirruð í dag, þessi tími mánaðarins??

Athugasemdir

1
hlustandi skrifar:
hahaha bara benda þér á það að það er verið að lesa upp þetta blogg þitt núna í beinni á xfm Andri og Búi ekki sáttir ;-)
07. desember 2006 klukkan 15:36

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Skemmtilegt fólk

Tenglar og dót

Innskráningar kubbur

Teljari