Habba Kriss
ByrgišHabba Kriss
Er maður ekki frekar hallærislegur ef maður bloggar ekki um þetta Byrgismál?Hef verið að velta þessu máli fyrir mér og komist að þeirri niðurstöðu að ef allt þetta er satt (sem ég held að það sé, kem að ástæðum þess á eftir) þá hefur maðurinn ekki brotið nokkur einustu lög. Guðmundur veitir sjálfseignastofnun forstöðu, sjálfseignarstofnun sem ríkið styrkir vel og duglega. Ef Guðmundur væri sálfræðingur eða læknir hefði hann brotið lög. Guðmundur er bara maður sem rekur stofnun, stofnun sem er ansi erfitt að skilgreina hvað er. Hann segir að þetta sé meðferðarheimili en óljóst er hverskonar meðferð fer þarna fram. Amk er hún ekki akademísk. Það segir kannski sitt að þetta meðferðaheimili er undir félagsmálaráðuneytinu en ekki heilbrigðisráðuneytinu eins og til að mynda SÁÁ og Teigur eru. Sennilega er þetta nær því að vera trúarsöfnuður eða gistiheimili.
En aftur að lögbrotunum, afhverju braut hann ekki lög? Jú það er ekki bannað að maður sem rekur svona heimli stundi kynlíf með konum sem samþykkja kynlífið. Læknir myndi sennilega missa leyfið og sálfræðingur líka. En Guðmundur, hann hefur ekkert leyfi, það ná engin sérlög yfir hans eins og aðra sem stunda meðferð.
Hitt er svo annað mál að þetta er algjörlega siðlaust. Kannski átta sig ekki allir á hverskonar einstaklingar þetta eru sem eru skjólstæðingarr hans. Þetta er konur sem eru með mölbrotna sjálfsmynd. Þetta er konur sem hafa e.t.v. haft kynlíf sem skiptimynt á götunni. Þetta eru konur sem finnast afskaplega lítið til sín koma. Þetta eru konur sem vita ekki hvar eðlileg mörk eru. Svo lenda þær þarna, "guðinn" á staðnum fær afskaplega mikin áhuga á þeim og tekur margra klukkutíma viðtöl við þær, eitthvað sem sálfræðingur myndi t.d. aldrei nenna að gera (enda hefur það lítin tilgang). Ekki er ólíklegt að komi upp sú hugsun, hann er að gera svo mikið fyrir mig, ég þarf að gera eitthvað fyrir hann í staðin.
Ég er kannski að ganga aðeins yfir strikið, ég læt svo líta út fyrir í skrifum mínum að þetta sé allt satt. Ég trúi því að þetta sé satt. Ég hef margar ástæður til þess. Ein sú er þessi. Hverjir eru það sem gera svona hluti? Jú það eru siðblindir einstaklingar, góðmenni eru ekki líklegir kandidatar í svona verknaði. Venjulegt fólk ekki heldur. Hvernig eru siðblindingjar. Jú meðal annars eru þeir kaldir sem ís. Setjið þið nú ykkur í hans spor. Þið eruð sökuð um mjög alvarlega hluti, hluti sem taka æruna frá ykkur, hluti sem gætu rústað vinnunni ykkar, hugðarefni ykkar og fjölskyldu ykkar. Það er ekki bara einhv vitleysingur sem er að ásaka ykkur, heldur er það sjónvarpsfréttamaður með myndavél og "mæk" Hann segist hafa fullt af gögnum í höndunum. Hvernig mynduð þið bregðast við, jafnvel þótt að þetta væri ósatt??
Lang lang felstir myndu fara í fár, þyrftu að jafna sig aðeins til að geta hugsað skýrt. Ég veit að ég myndi senilega fara bara að grenja, og ekki er ég nú mjög taugatrekt týpa. Hvernig myndu siðblindir einstaklingar bregðast við..... jú nákvæmlega eins Guðmundur brást við. Væri hægt að nota þetta sem kennslumyndband í klínískri sálfræði.
Að öðru, mikið er lífið rosalega skrýið stundum
Athugasemdir
1
Benni skrifar:
Vel að orði komist :-)
20. desember 2006 klukkan 02:06
2
eibba skrifar:
Gleðileg jól Habba mín
Eibban í Germany
Eibban í Germany
24. desember 2006 klukkan 05:25
